Tíðindi

Blekkjandi stundvísitölur

  25/01/2013desember 24th, 2013No Comments

Wow Air, Icelandair og áður Iceland Express gera, eftir hentugleika, mikið úr svokölluðum stundvísitölum sem ferðavefurinn turisti birtir reglulega. Einn mánuðinn stærir Icelandair sig af bestu stundvísinni og þann næsta Wow Air en þetta er töluvert blekkjandi tölfræði fyrir Jón og Gunnu ferðalanga.

Blekkjandi sökum þess að aðeins er tekið tillit til innlendra fyrirtækja þegar fjöldamörg önnur fljúga til og frá landinu. SAS, Norwegian, easyJet, Finnair, Airberlin, Primera og fleiri og fleiri fljúga reglulega til og frá Keflavík og ættu að teljast með sé hugmyndin að íslenskir flugfarþegar njóti góðs af. Með því að tiltaka aðeins þau innlendu er aðeins hálf sagan sögð.

Það er líka mjög blekkjandi að tala um prósentur. Það lítur sannarlega illa út að flugfélag sé aðeins stundvíst í 81 prósent tilvika eins og Icelandair hefur verið síðustu vikurnar í samanburði við vélar Wow Air sem náðu 86 prósenta stundvísi að meðaltali á sama tíma.

En bíðum við.

Yfir það tímabil flaug Icelandair 448 ferðir á móti 69 hjá Wow Air eða hartnær sjöfalt fleiri flugferðir. Og hver skyldi svo vera alls seinkun með hliðsjón af öllum ferðum þennan sama tíma? Meðalseinkun Wow Air reyndist fimm mínútur og meðalseinkun Icelandair reynist vera…. FIMM mínútur líka.

Með öðrum orðum; það er jafnmikil, eða lítil í þessu tilfelli, seinkun hjá Icelandair og Wow Air.

Út af fyrir sig er jákvætt mál að halda utan um stundvísi flugfélaga enda skiptir hún vitaskuld máli. En turisti virðist taka þann pól í hæðina að útbúa tölur sínar ekki fyrir ferðalanga heldur meira til að komast í blöð og bækur. Og notar til þess prósentur sem segja fólki villandi sögu.