Tíðindi

Dapurt prógramm hjá Icelandair

  09/01/2013No Comments

Þetta hljómaði nú bara tiltölulega spennandi. Sólartilboð til Orlando þá þrjá mánuði ársins sem Íslendingar sjálfir myndu kjósa út í hafsauga fengju þeir tækifæri til. Og aðeins 101.000 krónur á mann miðað við tvo saman.

Auglýsing á vef Icelandair um tilboð til Orlando. Umrætt fargjald er þó einungis í boði á einni dagsetningu

Hundrað kallinn fyrir sólarsleikju nokkra daga í Orlando í Flórída er það sem Icelandair auglýsir á vef sínum þessa dagana en þar er um að ræða tilboð í ferðir í janúar, febrúar og mars og hótel með samkvæmt upplýsingum á vef flugfélagsins. Miðað við að flug eitt og sér til Orlando og heim aftur með Icelandair fæst vart undir hundrað þúsund krónum alla jafna hljómar slíkt vel í eyrum.

Úttekt Fararheill.is leiðir hins vegar í ljós að á þessu þriggja mánaða tímabili sem flugfélagið auglýsir tilboð sitt er umrætt verð, 101.000 krónur, einungis í boði á einni einustu dagsetningu.

Tæknilega er ekkert að því að auglýsa tilboð næstu mánuðina en takmarka tilboðið við eina dagsetningu en siðferðilega er það fyrir neðan allar hellur að mati ritstjórnar Fararheill.

Á vef Icelandair kemur vissulega fram að fyrstur kemur fyrstur fær en að öðru leyti er einungis talað um frábært tilboð í sólina.

Sök sér að umrætt tilboð sé aðeins í boði á einni dagsetningu en verra er að meðaltalsverð á þeim tilboðsferðum sem eru í boði þessa mánuði og enn er ekki orðið uppselt í er kringum 140 þúsund krónur á mann eða 80 þúsund krónum dýrara fyrir tvo saman en auglýst tilboðsverð.

Hér að neðan er listinn yfir ferðir Icelandair sem eiga að heita í boði á tilboðinu 101.000 krónur samkvæmt úttekt Fararheill klukkan 01 þann 9. janúar 2013. Ódýrasta verð á mann.

14. janúar > uppselt
15. janúar > uppselt
18. janúar > uppselt
21. janúar > 121.700 krónur
25. janúar > 119.750 krónur
28. janúar > 109.700 krónur
29. janúar > 101.000 krónur
1. febrúar > 112.515 krónur
4. febrúar > 134.800 krónur
5. febrúar > 131.150 krónur
8. febrúar > 131.050 krónur
11. febrúar > 141.750 krónur
12. febrúar > 159.300 krónur
15. – 22. febrúar > uppselt
25. febrúar > 155.300 krónur
28. febrúar > 138.100 krónur
1. mars > uppselt
4. mars > 137.700 krónur
5. mars > 133.100 krónur
8. mars > 150.950 krónur
11. mars > 158.900 krónur
12. mars > 154.300 krónur
15. – 28. mars > uppselt

Auðvitað er ekki útilokað að allar uppseldu ferðirnar hafi upphaflega verið seldar á tilboðsverðinu 101.000 en það er verður að teljast ansi ólíklegt enda þetta ákveðna tilboð ekki verið svo lengi í boði.

Þá má ekki gleyma að þann 22. desember síðastliðinn auglýsti Icelandair einnig sólartilboð til Orlando sem gilda átti í janúar og febrúar eða sömu mánuði og hér um ræðir. Tilboðsverð á þeirri ferð á manninn 90.900 krónur.

Tilboð Icelandair hér.