Tíðindi

Undarleg ný ferðaskrifstofa

  06/01/2013desember 25th, 2013No Comments

Þegar þetta er skrifað hafa hartnær fimm þúsund Íslendingar lýst ánægju sinni á fésbókarsíðu nýrrar ferðaskrifstofu, Spánarferðir, en fyrir lof sitt geta áhugasamir unnið drauma sumarfrí með vikudvöl í lúxusvillu á Spáni í sumar eins og það er auglýst.

Ekki er staf að finna um hver stendur að baki þessari ferðaskrifstofu á fésbókarvef og heldur ekki á heimasíðu fyrirtækisins. Á þeirri síðarnefndu stendur að heimasíðan sé í vinnslu sem er æði undarleg forgangsröðun við stofnun ferðaskrifstofu.

Fyrst að lofa feitum vinningi á fésbókinni þann 21. desember síðastliðinn og svo vikum seinna er enn alls óljóst hvers lags tilboð um er að ræða, hvort flug er innifalið og eða frítt á golfvöllinn sem sagður er við hlið villu þeirrar sem virðist vera eina söluvara ferðaskrifstofunnar.

En Íslendingum virðist sama hvernig ferðaskrifstofa þetta verður eða hvort þetta verður ferðaskrifstofa en ekki bara sumarhúsaleiga eins og allt bendir til miðað við fyrirliggjandi upplýsingar. Lofin streyma inn.

En það er tekið feitt upp í sig því staðhæft er á vef Spánarferða að „Spánarferðir ehf. býður upp á drauma sumarfríið, þar sem gist er í alvöru Villu með einkasundlaug, golfvelli í nágrenninu, sól, sælu og alvöru afslöppun.“

Af lélegu korti að ræða sem birt er á fésbókarvef Spánarferða má ráða að villan umrædda, svo virðist sem aðeins sé um eina einustu að ræða, sé staðsett á stað sem heitir Ciudad Quesada og er ekki fjarri Íslendingabyggðinni í Torrevieja í Alicante. Sé það rétt er um að ræða leiguíbúðir í grennd við La Marquesa golfvöllinn. Samkvæmt listaverði á vef golfklúbbsins kostar hringurinn tæpar ellefu þúsund krónur á kjaft og því varla um kjarakaup að ræða í því samhengi.

En mikið má þetta „draumatilboð“ vera frábært því ekki þarf að leita mikið á netinu, um það bil sex sekúndur, til að finna stóra villu með einkasundlaug yfir háannatíma í júlí fyrir rétt rúmar átta þúsund krónur á dag eins og sjá má hér.

Jamm og jæja. Sagan hefur kennt ritstjórn Fararheill að ef það hljómar of gott til að vera satt…..


View Ciudad Quesada í Alicante in a larger map