Tíðindi

Tafir og vesen í Leifsstöð fram á sumar

  04/01/2013No Comments

Ef Fararheill.is væri gallsúr tilkynningavefur eins og mbl.is gætum við birt hér stóra fréttatilkynningu frá Isavia, rekstraraðila Leifsstöðvar, þess efnis að þar ætluðu menn aldeilis að breyta og bæta einu alþjóðflugstöð okkar Íslendinga á næstu mánuðum.

Líklega verður aðgengi að suðurbyggingu Leifsstöðvar mjög takmörkuð fram á sumarið með tilheyrandi töfum og veseni fyrir farþega. Mynd Thisisbossi

Við gætum til dæmis afritað þennan texta úr opinberri tilkynningu Isavia:

Í vor er fyrirhugað að taka í notkun ný biðsvæði fyrir farþega, fjölga brottfararhliðum og umtalsverðar breytingar verða einnig gerðar innandyra í flugstöðinni. Má þar nefna stærra svæði fyrir verslunar- og veitingaþjónustu við brottfarahlið í suðurbyggingu, stækkun biðsvæða og verulega fjölgun sæta sem auka mun þægindi og hraða afgreiðslu farþega til og frá borði.

Þetta hljómar nú spennandi. Breytt, bætt og enn flottari og þægilegri flugstöð. En hvað þýðir þetta í raun og veru fyrir Jón og Gunnu Indíafara?

Þetta þýðir að hávaði og barsmíðar heyrast um flugstöðina næstu fimm eða sex mánuði og einhvers konar slökun alveg út um gluggann með beðið er flugs. Þetta þýðir að líkindum meiri tafir þar sem loka þarf ákveðnum hliðum, göngum eða verslunarsvæði í flugstöðinni. Annaðhvort það eða að fljótlega verður þess farið á leit við fólk að það mæti enn fyrr til flugs en hingað til hefur verið raunin. Sérstaklega á það við um þá sem fljúga með öðrum flugfélögum en Icelandair sem hefur mikið til einkarétt á fremstu landgöngunum meðan önnur félög leggja gjarnan að við suðurbygginguna sem einmitt á að breyta hvað mest.

Leifsstöð sjálf er svo enn eitt dæmið um ríkisframkvæmd þar sem ekki eitt augnablik var litið til framtíðar við hönnun og byggingu þegar hún var reist fyrir 25 árum síðan. Almennt tala arkitektar um að slíkar byggingar eigi að duga minnst 20 ár eða svo áður en miklu er breytt eða bætt við en Leifsstöð hefur hins vegar tekið stórvægilegum breytingum eigi sjaldnar en fimm sinnum á þessum 25 árum og kostnaður í hvert skipti jafnan verið duglega yfir áætlunum. Það fé kemur alltaf úr vasa okkar skattgreiðenda.

Verst er kannski að hin tiltölulega einstaka og fallega flugstöð sem upphaflega var byggð og bar þá af flugstöðvum víðast hvar hefur gegnum tíðina með eilífum viðbótum breyst í forljótt bákn sem sómir sér vel við hlið úreltra mannvirkja bandaríska hersins í grenndinni.