Það virkar klárlega ekki fyrir alla en það er hægt að spara nokkra fjármuni bíði fólk fram á allra síðustu stundu með að bóka hótel á ferðalögum.
Algjör sprengja hefur orðið síðustu mánuðina í nýjum viðbótum, svokölluðum öppum, í snjallsíma og fartölvur þar sem boðið er upp á sértilboð á útvöldum hótelum víða um heiminn. Þessi tilboð eru frábrugðin hefðbundnum tilboðum hótelbókunarvéla að því leytinu til að þau gilda aðeins samdægurs og yfirleitt til skammrar dvalar.
Þetta er nýjasta útspil margra hótela í heiminum sem farin eru að taka upp á því að selja herbergi á extra góðum afsláttum þegar fyrirvarinn er stuttur. Eðlilega er betra að hafa fimm þúsund krónur fyrir herbergi en ekkert en hótelin eru þó ekki reiðubúin að bjóða slíkt þegar pantað er með fyrirvara eins og oft er hagkvæmasta lausnin.
Reynist meðal afslátturinn frá hefðbundnu herbergisverði vera um tíu prósent yfir línuna en getur líka hoppað upp í 50 prósent afslátt í stöku tilfellum. Það munar um það enda gisting oftar en ekki dýrasti hluti hvers ferðalags.
Þannig að ef ferðast er til skamms tíma á lágannatíma er sjálfsagt að geyma að panta hótel fyrr en sama dag og ferðast er og taka sjénsinn að njóta mun betri kjara en ella.
Nokkur þau fyrirtæki sem eru hvað stærst í þessum bransa og finnast öll með snjallsímum eru:
- Booking.com Tonight
- HotelsNow
- HotelTonight
- VeryLastRoom
- JustBook






