Fræðingarnir segja að þeir sem á annað borð eigi peninga hér á landi eigi fullt af þeim. Víst má til sanns vegar færa að fjöldi innlendra fjárfesta kaupa nú lönd og byggingar til að ávaxta fé sitt og ásókn hefur verið í bréf þeirra félaga sem sett hafa verið á markað. En almennt áhugaleysi virðist vera fyrir kaupum á ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar.

Hvað veldur því að stærsta ferðaskrifstofa landsins selst ekki á tímum þegar íslenskir milljarðamæringar vita ekkert hvað á að gera við seðlana?
Úrval Útsýn, stærsta ferðaskrifstofa landsins, ætti að seljast á fimm mínútum ef allt væri eðlilegt. Hún er ein af fjórum ferðaskrifstofum sem heyra undir Ferðaskrifstofu Íslands sem hefur verið í eigu Pálma Haraldssonar frá bankahruni. Hinar eru Plúsferðir, Sumarferðir og Hekla Travel í Danmörku.
Batteríið eins og það lagði sig var sett í söluferli í byrjun september og séu raunverulega til fjárfestar sem ekkert vita hvernig eigi að ávaxta milljónir og milljarða króna í þeim gjaldeyrishöftum sem ríkja í landinu ættu að grípa stærstu ferðaskrifstofu landsins fegins hendi.
Það hafa þeir ekki gert og nú tveimur mánuðum seinna er fátt eitt að gerast og salan verið sett á ís eins og það er kallað.
Kannski er Pálmi að heimta of mikið og Viðskiptablaðið hefur greint frá því að hann meti viðskiptavild fyrirtækisins á 2007-forsendum eða á hundruðir milljóna. Sem enginn kaupir enda þarf ekki greindarvísitölu yfir herbergishita til að vita að hefðbundnar ferðaskrifstofur munu deyja drottni sínum fyrr en síðar og þá verður auðvitað fall þess stærsta mest.






