Það er ekki bara gangnam style lagið og dansinn sem tekið hefur heimsbyggðina með stæl. Nú er Gangnam hverfið í Seól í Suður Kóreu aðalstoppið í bænum meðal ferðamanna.

Viðskiptahverfi Seól í S.Kóreu nýtur mikilla vinsældar þótt hverfið atarna sé snautt af sérstaklega merkilegum hlutum.
Lagið, sem allir sem eru lifandi og hafa komist nálægt fjölmiðlum síðustu misserin, þekkja vinsældir lagsins Gangnam Style með rapparanum Psy. Lagið og dansinn njóta gríðarlegra vinsælda og ekki tók langan tíma áður en þær vinsældir skiluðu sér í kassa ferðamálayfirvalda í landinu.
Gangnam er hverfi í borginni Seól en merking orðsins er „suður fyrir ánna“ en hverfið sjálft er þó ekkert merkilegt nema þú sért í borginni í viðskiptaerindum. Þetta er viðskiptahverfi borgarinnar með skýjaklúfum og jakkafataklæddum mönnum í stíl og álíka fróðlegt skoðunar og Borgartún í Reykjavík.
Það breytir engu. Ferðaþjónustuaðilar bjóða nú sérferðir með leiðsögn á svæðið og spila náttúrulega lagið fræga alla leiðina. Og þeir hafa ekki undan samkvæmt því er fram kemur í dagblaðinu USA Today.
View Gangnam hverfið í Seól í Suður Kóreu in a larger map






