Icelandair hefur til skamms tíma auglýst þá þjónustu að innrita sig beint inn í vélar félagsins, alfarið miðalaust, með símakóðum.

Miðalaus innritun er fínasta mál en gallinn sá að þeir sem ekki eiga nýjustu farsímana missa af vildarpunktum
Óvitlaust framtak því minni pappírsnotkun er góð fyrir heiminn okkar og sparar flugfélaginu skildinginn líka. Nú bætir flugfélagið um betur og býður vildarpunkta þeim sem þessa þjónustu nota væntanlega í þeirri von að koma fleirum á bragðið.
En á þessu er stór hængur. Til þess að nýta sér þessa þjónustu verður að hafa svokallaða snjallsíma eða nýjustu týpu af farsímum sem hafa nýjustu stýrikerfin í þeim bransanum. Og þó Íslendingar séu tækjaóðir eru langt í frá allir með slíka síma.
Hvers eiga þeir að gjalda?






