Tíðindi

Vítt og breitt á sem ódýrastan máta

  20/11/2012No Comments

Óhætt er að fullyrða að aldrei í sögunni hefur verið jafn auðvelt, einfalt eða ódýrt að þvælast um heimskringluna og síðustu árin. Leiðakerfum flugfélaga fjölgar jafnt og þétt og vart hægt að blikka auga án þess að nýtt lággjaldaflugfélag taki ekki til starfa einhvers staðar.

Ævintýralegur vöxtur lággjaldaflugfélagsins flydubai hefur vakið athygli. Ekki fjögurra ára gamalt en býður áætlunarflug til yfir 50 áfangastaða nú þegar

Hingað til hafa svokölluð lággjaldaflugfélög að langmestu leyti haldið sig við styttri flugleiðir og mörg hver keyrt viðskiptamódel sín á magni fremur en gæðum. Stóru, gömlu flugfélögin hafa að mestu haft út af fyrir sig allar lengri ferðir en á því er að verða breyting og reyndar undarlegt að sú breyting hafi ekki orðið fyrr. Stóru flugfélagin getu jú ekki lækkað verð sín ýkja auðveldlega af ýmsum sökum en það er ekkert að stoppa lággjaldaflugfélög, sem oft eiga nýrri, flottari og sparneytnari vélar, að auka úrvalið og hækka aðeins verð.

Við greindum frá því fyrir skömmu að eitt allra besta og þægilegasta lággjaldaflugfélagið, Norwegian, ætlaði að bjóða upp á ferðir til Asíu og Bandaríkjanna á næsta ári. Má slá því föstu að gangi það vel munu önnur slík fylgja í kjölfarið frá Evrópu.

En Norwegian er fjarri því eina félagið sem hugsar sér gott til glóðarinnar. Vestanhafs í Bandaríkjunum vinnur lággjaldaflugfélagið Southwest að því að bjóða upp á ferðir til Mið- og Suður-Ameríku í samkeppni við American, Delta og United. Slíkar ferðir gætu hafist 2014 ef allt gengur eftir.

Í Mið-Austurlöndum er geysivinsælt lággjaldaflugfélag sem lítið er þekkt á Fróni en stækkar ört. Það er flydubai sem er reyndar ríkisrekið en nýtur svo mikilla vinsælda að nú býður félagið upp á flug til 50 áfangastaða. Frá höfuðstöðvum þeirra í Dúbai er til dæmis hægt að fljúga til Maldives-eyja fram og aftur fyrir 50 þúsund krónur svo dæmi sé tekið.

Síðast en ekki síst hefur lággjaldaflugfélagið AirAsia í hyggju að fjölga til muna áfangastöðum sínum til muna á næstunni en það er einna stærst allra slíkra flugfélaga í Asíu. En þar líka er stutt í sprengingu því þar fjölgar slíkum flugfélögum ört og á síðustu árum hafa ein sjö lággjaldaflugfélög hafið starfsemi á Indlandi og í Kína svo dæmi sé tekið. Ekki þarf að taka fram hvað ríkisrekið kínverskt lággjaldaflugfélag gæti mögulega gert einn góðan veðurdag.

Fyrir ferðaþyrsta á Íslandi er allt þetta góðar fréttir jafnvel þó þjónustustig margra slíkra flugfélaga sé í daprari kantinum. Fararheill hefur leikið sér að útreikningum til hinna og þessara staða með slíkum félögum eingöngu og engin vafi leikur á að hægt er að spara töluverðar upphæðir á heimsbrölti með þeim hætti. En það þarf líka tímafrekan undirbúning til.