Tíðindi

Brátt hægt að reykja kannabis skammlaust vestanhafs

  08/11/2012No Comments

Afskaplega lítið hefur farið fyrir þeim fregnum en nú geta þeir sem ekki geta hugsað sér annað en reykja eina jónu eða svo gert það áhyggjulausir í tveimur bandarískum fylkjum. Beint flug er til þeirra beggja frá Íslandi.

Nú þarf Lady Gaga ekki að þvælast lengur til Amsterdam til að fá sér jónu. Ferð til Washington nægir

Um er að ræða höfuðborgina Washington D.C. annars vegar og Kolóradófylki hins vegar en íbúar beggja kusu að leyfa skyldi marijúanareykingar en um þetta var kosið víða í Bandaríkjunum samhliða forsetakosningunum á þriðjudaginn var.

Vitaskuld þurfa neytendur ekki að fara alla leið til Bandaríkjanna til að komast í grasið án þess að yfirvöldin andi niður um hálsmálið. Neysla þessa efnis er leyfileg víða í litlu magni og í mörgum þeim Evrópulöndum þar sem lög banna marijúanareykingar er því banni ekki framfylgt af fámennri lögreglu sem glíma við töluvert alvarlegri glæpi en það.

Í öllu falli þarf engar áhyggjur að hafa á þessum stöðum vestanhafs mikið lengur. Lögum samkvæmt fellur bannið niður í Kolóradófylki 60 dögum eftir atkvæðagreiðslu þar um og í Washington er enn skemmri bið eða til 6. desember.

Ekki búast við að hassbúllur á borð við þær sem finnast í Amsterdam fari að poppa mikið upp á þessum stöðum þó heimilt sé að reykja kannabis.