Tíðindi

Sumarferðir bjóða vetrarferðir

  03/11/2012janúar 27th, 2014No Comments

Stundum eru menn of sniðugir til að hugsa fram í tímann. Er til dæmis óhætt að treysta ferðaskrifstofu sem sérhæfir sig í sumarferðum fyrir vetrarferðum?

Auðvitað er það enda Sumarferðir hluti af sömu samsteypu og Úrval Útsýn. Ferðaskrifstofan auglýsir nú svokallaðan sólarhring sem hefst á mánudagsmorgun en þar verða í boði vetrarferðir á sérstöku tilboði. Þau tilboð gilda um ferðir á þeirra vegum til Tenerife frá áramótum og fram til páska.

Gróf yfirferð Fararheill leiðir í ljós að um er að ræða kringum 20 þúsund króna afslátt á mann frá hefðbundnu verði eða 40 þúsund samanlagt en nákvæm upphæð fer þó eftir hótelum.

Sem dæmi fæst flug og vikudvöl 9. til 16. febrúar á Parque de las Americas íbúðahótelinu á 123.900 krónur á mann miðað við tvo saman samkvæmt hefðbundnu gjaldi. Tilboð Sumarferða á mánudaginn kemur hljóðar upp á 99.900 krónur á mann fyrir sömu ferð. Það er hreint ekki slæm skipti fyrir ferðaglaða.

Sömuleiðis býðst tveggja vikna dvöl þann 19.janúar á Hesperia Troya á 129.900 krónur á mann miðað við tvo á tilboðsverði. Það hótel er reyndar ekki í boði við hefðbundna bókun en ódýrasta ferð með hóteli í boði þessar tvær vikur hjá Sumarferðum kostar 153.900 krónur á mann. Rúmlega 23 þúsund krónur sparast þannig á kjaft.

Þetta er fínasta mál og um að gera að planta rassi fyrir framan nettengda tölvu á mánudagsmorgun og grípa gæs. Varast skal að láta blekkjast af sólarhringsheiti tilboðsins. Það gildir ekkert í sólarhring heldur aðeins meðan tilboðssæti endast og ekkert er gefið upp um fjölda þeirra.

Heimasíða Sumarferða hér.