Icelandair hefur fellt niður ferðir sínar til og frá New York borg frá og með mánudagsmorgni sökum fellibylsins Sandy sem ráð er gert fyrir að valdi usla á austurströnd Bandaríkjanna strax í kvöld og frameftir nóttu að íslenskum tíma.
Um er að ræða eftirtalin flug sem falla niður:
FI 615 frá Keflavík til New York,
FI 617 frá Keflavík til New York,
FI 614 frá New York til Keflavíkur,
FI 616 frá New York til Keflavíkur
Þeir sem eiga bókað flug þennan dag eiga um tvo kosti að velja. Annars vegar að fá endurgreiðslu fargjaldsins hjá söluaðila ellegar breyta flugi sínu.
Reyndar getur verið hængur á báðum kostum því er fram kemur á vef Icelandair. Annars vegar er ekki gefið að laus sæti séu til New York næstu dagana sé óskað eftir flugi sem allra fyrst. Hins vegar fer full endurgreiðsla aðeins fram fyrir brottför.
Skilning er hægt að hafa á að ekki sé hægt að bóka í næstu flug ef þær vélar eru fullar en að bjóða aðeins fulla endurgreiðslu fyrir brottför er galið. Ekki síst með það í huga að Icelandair tilkynnir um niðurfellingu flugs á sunnudagsmorgni og þjónustuver flugfélagsins er nú yfirleitt ekki opið á sunnudögum. Eða eins og fram kemur á vef flugfélagsins:
Full endurgreiðsla, fyrir brottför. Viðskiptavinir sem óska eftir endurgreiðslu ættu að tala við aðila þar sem ferð var bókuð.
Þessar reglur sleppa kannski í þetta sinn þar sem umrædd flug héðan voru áætluð síðdegis og því gefst fólki kostur á að hafa samband með fyrirvara. En spurningar vakna ef morgunflug skyldi einn slæman veðurdag vera fellt niður á sunnudegi. Þá situr fólk uppi með tap miðað við þessar reglur flugfélagsins.
Og hver tók svo upp á því að skíra fellibylji mannanöfnum?







