Ritstjórn Fararheill hefur löngum verið legið á hálsi að einblína á hið neikvæða og gefa jákvæðari fregnum ekki nægan gaum. Það tengist eðlilega því að íslenskar ferðaskrifstofur og flugfélög eru oftar en ekki aftarlega á merinni í erlendum samanburði og af hverju ættu Íslendingar að sætta sig við verri kjör og þjónustu en aðrir heimsborgarar.
En við hrópum líka allra hæst húrra í þau skipti sem ferðaþjónustuaðili gerir eitthvað umfram normið gagnvart viðskiptavinum sínum eða býður fargjöld sem sannarlega eru kjarakaup fyrir fólk.
En okkur er nokkur vandi á höndum varðandi fregnir þess efnis að Iceland Express hafi verið valið þriðja besta lágfargjaldaflugfélag Danmerkur á nýafstaðinni Danish Travel Awards. Ferðavefurinn Túristi gerir þessu skil og íslenskir fjölmiðlar margir gripið þetta á lofti þaðan athugasemdalaust.
Vandamálið er þríþætt. Fyrir það fyrsta er Iceland Express ekki flugfélag í neinni merkingu þess orðs. Iceland Express er ferðaskrifstofa og ferðaskrifstofa getur ekki verið þriðja besta lágfargjaldaflugfélag Danmerkur.
Í annan stað finnur Fararheill hvergi nána útlistun á hvernig að valinu var staðið. Víst tóku bæði farþegar og ferðaþjónustuaðilar þátt í atkvæðagreiðslunni en að hverju var spurt. Með öðrum orðum; hvers vegna er Iceland Express þriðja besta lágfargjaldaflugfélag landsins? Vélar þess góðar? Þjónustan? Matur um borð? Leiðakerfið? Allt þetta?
Í þriðja lagi kemur hvergi fram að í flokknum „bestu lágfargjaldaflugfélög Danmörku“ að fleiri en þrjú flugfélög hafi þar verið tilnefnd. Er það ítrekað á vef DAT sem er það flugfélag sem valið var best. Sé það rétt er Iceland Express í neðsta sætinu.
Tekið er fram hjá fyrrnefndum Túrista að í keppninni hafi Iceland Express skotið aftur fyrir sig stórum aðilum á borð við easyJet og Airberlin sem þessa keppni sigraði í fyrra. Hann tekur þó ekki fram að Airberlin kom ekki til greina í þessum flokki að ósk flugfélagsins sjálfs.
Að þessu sögðu hefur ritstjórn fína reynslu af flugi með Iceland Express frá því að skipt var um flugrekanda síðasta vetur og heyrt bara ágæta hluti frá öðrum. CZA Holidays, sem á og rekur flugvélar þær er Iceland Express notar, hefur lengi þótt vera fyrirtaks flugfélag með góða sögu og engin ástæða til annars en að það gildi hér líka.
En auðvitað rísa nú einhverjir upp og ítreka hversu ritstjórn Fararheill sé alltaf svo neikvæð.







