Tíðindi

Iceland Express – hækkar verð

  10/10/2012No Comments

Mottó flugfélagsins Iceland Express að lækka verð hljómar töluvert hjákátlega í þau skipti sem félagið hækkar verð. Svokallað bókunargjald félagsins sem tekið var upp í sumar svo lítið bar á hefur nú hækkað um helming.

Rogastans er ekki rétta orðið þegar ritstjórn Fararheill rak augun í að bókunargjald Iceland Express hefur á hálfu ári hækkað úr 500 krónum í 1.500 krónur. Þar var um mistök að ræða og gjaldið í raun 1.000 krónur.

Eins og Fararheill greindi frá hóf Iceland Express að taka sérstakt bókunargjald af öllum viðskiptavinum sínum í vor sem leið og bættist þá 500 króna gjald ofan á allar bókanir hjá félaginu.

Nú hálfu ári seinna hefur umrætt bókunargjald sem reyndar er kallað þjónustugjald hækkað í þúsund krónur.

Reyndar kemur fram á vef Iceland Express að gjaldið sé 1.500 krónur en talsmaður félagsins segir það mistök og gjaldið eigi að vera sléttar þúsund krónur. Gjaldið tekur mið af verðlagi í landinu og það tekið til að standa straum að kostnaði við að halda úti vef fyrirtækisins.

Það er engu að síður helmingshækkun en gjald þetta leggst ofan á öll fargjöld til allra staða.

Iceland Express er ekki eitt um að leggja á slíkt bókunargjald. Icelandair gerir það líka sem og Wow Air og mörg erlend flugfélög einnig.