Þennan daginn eru í boði tilboð frá Wow Air, Iceland Express og ferðaskrifstofunni Ferð.is.
Wow Air býður áhugasömum að kaupa far til London aðra leið með sköttum og gjöldum nema farangursgjaldi, til miðnættis í kvöld á 14.900 krónur.
Iceland Express er einnig með tilboð til London á 15.700 krónur en það tilboð hefur reyndar verið í boði síðustu dagana. Þar er einnig hægt að komast til Berlínar og Kaupmannahafnar á sama verði aðra leiðina. Tilboð Iceland Express er betra en hjá Wow ætli fólk að taka með sér eins og eina tösku því enn hefur ekki verið lagt á sérstakt farangursgjald hjá hinum fyrrnefndu.
Einnig auglýsir Iceland Express enn tilboðsfargjöld til Alicante og Barcelóna á 20.700 krónur en engin slík fargjöld eru þó í boði og fyrirtækið reyndar hættir flugi til og frá Barcelóna á morgun. Þau eru því ómarktæk.
Ferðaskrifstofan Ferð.is býður sértilboð til Madríd á Spáni og Dublin á Írlandi. Er þar um að ræða flug aðra leiðina með sköttum og gjöldum á 29.900 krónur en um er að ræða fjögurra daga ferð í Madríd og þriggja nátta ferð í írsku höfuðborginni en án gistingar. Undarlegt reyndar að heimta sama gjald fyrir þessar ferðir enda töluvert styttra flug til Írlands en Spánar.
Heimasíða Iceland Express hér. Heimasíða Wow Air hér. Heimasíða Ferð.is hér.






