Ferðatilboð

Norskar borgir á hraðtilboði

  02/10/2012apríl 27th, 2013No Comments

Illu heilli er engin sérstök Nóvemberfest í Munchen í Þýskalandi því þangað er komist á tilboðsfargjaldi þorra þess mánaðar með Icelandair.

Mekka olíuvinnslu Norðmanna er Stavanger og er sú borg í allra dýrasta kantinum. En þangað er allavega komist billegar nú en venjulega.

Munchen er ein fjögurra borga á hraðtilboði flugfélagsins en grípa verður þá gæs fyrir hádegi miðvikudaginn 3. október. Aðrar borgir á tilboði þennan sólarhringinn eru allar í Noregi; Stavanger, Þrándheimur og Bergen. Sama verð, 14.900 krónur, er aðra leiðina með öllu til norsku borganna en 16.900 krónur kostar að fljúga til Þýskalands.

Ferðast verður til Bergen á tímabilinu 18. október til 17. desember, Stavanger frá 21. október til 16. desember og Þrándheims milli 29. október og 17. desember. Munchen er svo í boði frá 3. til 27. nóvember.

Heimasíða Icelandair hér.