Þeim fjölgar ört fyrirspurnum lesenda Fararheill.is um ferðir hingað og þangað og er það vel. Ritstjórn reynir sitt besta til að leiðbeina þeim er þess óska við að finna ferðir, gistingu og annað slíkt á sem hagkvæmastan máta.

Fararheill er ekki ferðaskrifstofa og við seljum engar ferðir. En við veitum góðfúslega upplýsingar og hjálp ef þess er kostur
En að gefnu tilefni skal ítrekað að Fararheill.is er ekki ferðaskrifstofa eins og ýmsir virðast halda. Við erum bara áhugafólk um ferðalög og langþreytt á fábreytni í ferðavali og oft á tíðum dapri þjónustu flugfélaga og ferðaskrifstofanna íslensku.
Ekki þar fyrir að einn góðan veðurdag gæti það breyst en þangað til erum við áfram boðin og búin að aðstoða eða leiðbeina þeim er þess óska. En ferðir seljum við engar.






