Ritstjórn Fararheill hefur áður gefið ferðaskrifstofunni Heimsferðum klapp á bakið fyrir að vera ein af fáum innlendum ferðaskrifstofum sem reglulega býður sértilboð á stöku ferðum sínum og auglýsir það sérstaklega á vef sínum.
Þannig má nú finna á vef þeirra ein sex tilboð á sérkjörum þar sem stutt er í brottför en hafi menn getu og tækifæri til að skreppa með litlum fyrirvara er vart hægt að gera mikið betri kaup.
Meðal forvitnilegra ferða á tilboði nú er fjögurra daga ferð til Búdapest í Ungverjalandi á 79.900 á fjögurra stjörnu hóteli. Borgin glæsileg og verðlag afskaplega hagstætt fyrir tómleg íslensk veski.
Ekki amaleg heldur er vikuferð til Tenerife eyju á ágætu íbúðahóteli með öllu inniföldu á 79.900 á mann miðað við tvo fullorðna og tvö börn. Er reyndar kjánalegt að bjóða slíkt nú þegar skólar eru nýbyrjaðir og fæstir foreldrar geta með góðu móti tekið börnin burt í viku. Verð á þessum pakka á mann fyrir tvo fullorðna er 99 þúsund á mann og sleppur svosem ágætlega líka.
Síðast en ekki síst komast áhugasamir til Prag í Tékklandi fyrir rúmar 40 þúsund krónur fram og tilbaka þann 27. september í þriggja daga ferð. Það er massíft góður prís jafnvel þó hótel sé ekki innifalið í því verði.
Öll tilboð Heimsferða má sjá hér.







