Hver sá vefmiðill sem vill láta taka sig þokkalega alvarlega og ber snefil af virðingu fyrir lesendum sínum ætti ekki að dulbúa auglýsingu sem raunverulega grein.

Sök sér að auglýsa þjónustu hjá Iceland Express en að bæta við síma, netfangi þjónustudeildar og tengil á heimasíðu er fyrir neðan allar heimsins hellur
Það gerir vefritið Bleikt þar sem farið er fögrum orðum um ákveðna þjónustu Iceland Express.
Geta áhugasamir látið flugþjóna þess færa flugfarþegum litla freyðivínsflösku og öskju af konfekti þegar flug er hafið og komið viðkomandi þannig á óvart.
Ekki aðeins flokkast þetta sem algjör „himnasending“ að mati ritstjórnar Bleikt heldur og er fólk hvatt til að panta og sími, netfang þjónustuvers og tengill á vef Iceland Express fylgir „fréttinni.“
Á mannamáli heitir þetta auglýsing og ekki ólíklegt að um keypta auglýsingu sé að ræða þó ekki finnist nein slík merking. Lágmarkskrafa er að slíkt efni sé merkt með öðrum hætti en annað efni.






