Tíðindi

Nú er tíminn að plana ferðalag næsta sumar

  07/09/2012No Comments

Tel Aviv, Mallorca, Ibiza, Korfú eða Napolí? Aðeins nokkrar af þeim borgum sem lágfargjaldaflugfélagið easyJet flýgur til frá London en nú er tíminn til að tryggja sér allra ódýrustu fargjöld þess flugfélags næsta vor og sumar.

Ódýrustu fargjöld easyJet frá Keflavík til London þennan veturinn en þessi fargjöld fara bara hækkandi þegar fram líða stundir.

Það skýtur dálítið skökku við að meðan innlendar ferðaskrifstofur eru rétt farnar að kynna haust- og vetrarferðir sínar eru félög á borð við lágfargjaldaflugfélagið easyJet farið að kynna vor- og sumardagskrána. Enn eitt dæmið um hversu aftarlega á meri íslenskar ferðaskrifstofur eru. Því vitaskuld fást yfirleitt allra bestu verð á flugi og gistingu með eins löngum fyrirvara og framast er kostur.

Vorferðir easyJet 2013 eru þegar komnar í sölu og geta þeir sem hafa góða biðlund sparað sér töluverða peninga og keypt ferðir sínar í dag í stað þess að bíða. Eins og sést á meðfylgjandi lista er töluverður munur á að kaupa far með easyJet aðra leið frá Keflavík til London nú en það er næsta vor. Sömuleiðis eru fargjöld easyJet áfram til annarra staða einnig hvað billegust nú en hækka svo jafnt og þétt í vetur.

Þannig kemst einstaklingur frá Íslandi til Malaga á Spáni í maí aðra leiðina fyrir milli 17 og 19 þúsund krónur með eina tösku meðferðis sé ferðin keypt nú.

Frá Íslandi til Antalya í Tyrklandi kemst sami einstaklingur næsta maí fyrir innan við 20 þúsund krónur á ódýrasta fargjaldi með eina tösku aðra leiðina.

Þarna er um grófa útreikninga að ræða miðað við miðgengi krónu gagnvart evru en gefur þó vísbendingar um hvað er í boði hafi fólk biðlund eftir ferðum og vilja til að millilenda í Englandi til að komast billegar út í heim. Þó skal hafa í huga að auglýst verð easyJet eru ekki kórrétt. Við þau bætast bæði umsýslugjald og gjald er tekið fyrir innritaðan farangur. Þau gjöld eru innifalin í útreikningunum hér að ofan.