Pistlar

Af „ónýtum“ flugvélum Icelandair

  26/07/2012No Comments

Nokkra athygli hefur vakið bloggpistill Páls nokkurs Blöndal sem segir sínar farir ósléttar eftir flugferðir með miður góðum vélum Icelandair. Gagnrýnir hann þar að hafa tvívegis þurft að sitja í „eldri“ vélum flugfélagsins; vélum sem hafi minna og þrengra sætispláss og séu án afþreyingarkerfis en hann greiði fyrir sama verð engu að síður. Þá telur Páll öryggi og viðhaldi vélanna verulega ábótavant.

Einum viðskiptavini Icelandair blöskrar viðhald um borð í tveimur vélum Icelandair en báðar eru leiguvélar

Skrifar Páll:

Sú vél sem við fórum með til Barcelona hét Öræfajökull (að mig minnir) og var Boeing 757
1) Þar voru gömul úr sér gengin sæti, allt of þröngt á milli sætaraða.
2) Ekkert afþreyingarkerfi var í sætisbökum eins og í þeim nýrri.
3) Boðið var upp á gamla túbuskjái í loftum gangvegs til að horfa á bíómynd.
Þessir skjáir voru ekki brúklegir orðnir gamlir og liturinn kolvitlaus
4) Boðið var upp á frí heyrnartól, en hljóðið var bilað og því gagnslaust.

Á bakaleiðinn var boðið upp á aðra flugvél sem hért Grímsvötn, af sömu gerð
1) Farþegar voru látnir bíða í um klukkustund vegna þess að illa gekk að koma fatlaðri manneskju úr vélinni. Vélin illa búin.
2) Rétt fyrir flugtak reyndist ekki var hægt að loka hurð á farangursrými vélarinnar og þurfti að kalla til flugvirkja til að lappa upp á hurðina. Hálftíma seinkun þar.
3) Engir afþreyingarkerfi í vélinni sem virkuðu.
4) Ljós til lestrar virkuð ekki.
5) Ekki var hægt að fá kaffi þar sem rafkerfi fyrir kaffikönnu var bilað
6) Ekki var hægt að fá upphitaða samloku þar sem rafkerfið var bilað

IcelandAir selur ferðir með þessum vélum á sama verði og betri vélunum.
Hér ætti að vera mikill munur á verði þar sem þjónustan og öll umgjörð sem snýr að farþegum  er ekki sambærileg því sem gerist á betri vélunum. Viðhaldi er greinilega ábótavant.

Fararheill kannaði hverju þetta sætti hjá Icelandair. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi félagsins, segir það misskilning að um eldri vélar sé að ræða.

Hér er um að ræða flugvélar sem eru leigðar inn til Icelandair á háannatímanum til að mæta árstíðarsveiflunni og eru ekki innréttaðar í Icelandair stíl. Það er því misskilningur að um sé að ræða eldri vélar. Í þeim eru jafn mörg sæti, og sætisbil hið sama, og í öðrum vélum Icelandair. Munurinn liggur í því að í þeim er ekki sama afþreyingarkerfi, þ.e. skjár í öllum sætum. Þess í stað er öllum farþegum boðið upp á psp (play station portable) tæki með fjölda bíómynda og frí heyrnartól. Þjónustan er að öðru leyti sú sama og í öðrum flugvélum Icelandair.

Ritstjórn forvitnaðist líka um hvort ekki væri eðlilegt að miðaverð með slíkri vél væri lægra en í betur útbúinni vél en við þeirri spurningu fékkst ekkert svar.