Tíðindi

Enn voll hjá Icelandair

  23/07/2012No Comments

Einn dagur til í viðbót eða svo og við erum komin með fína, ef örlítið einhæfa, framhaldssögu. Fjórða daginn í röð raskast flugáætlun Icelandair verulega og enn er enginn nær hvur #$%&/)& er á seyði.

Fátt er leiðigjarnara en eyða lengri tíma á flugvelli en brýn þörf er á. Farþegar Icelandair hafa síðustu daga þurft að gera sér það að góðu

Icelandair gætir þess að birta slíkar fregnir EKKI undir liðnum fréttir á vef sínum heldur í sérstakri vefstiku sem gerir ókleift að fletta því upp síðar hafi einhver hug á því.

Að þessu sinni er tilkynningin svona:

Seinkun:FI-212 og FI-213 Kaupmannahöfn 23 júlí.Seinkun:FI-440 og FI-441 Manchester 23 júlí.
Síðast uppfært: 23.07.2012 08:53 GMT

Vegna seinkunar á komu á öðru flugi.

Nýr brottfarartími:

FI-212 brottför frá Keflavík 23 júlí kl:15.50 staðartíma lendir í kaupmannahöfn kl:20.50 staðartíma.
Fi-213 brottför frá Kaupmannahöfn 23 júlí kl:22.30 staðartíma lendir í Keflavík kl:23:40 staðartíma.

Farþegar eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við þjónustuver Icelandair fyrir frekari upplýsingar eftir kl:08:00 23. júlí í síma 5050100.

Vegna seinkunar á komu á öðru flugi.

Nýr brottfarartími:

FI-440 brottför frá Keflavík 23 júlí kl:09.50 staðartíma lendir í Manchester kl:13:00 staðartíma.
Fi-441 brottför frá Manchester 23 júlí kl:14:15 staðartíma lendir í Keflavík kl:15:50 staðartíma.

Farþegar eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við þjónustuver Icelandair fyrir frekari upplýsingar í síma 5050100.

Upplýsingar fyrir farþega á flugi FI-521 frá Frankfurt sem millilenti í Glasgow.

Icelandair er að vinna í því að endurbóka alla farþega til Íslands og Ameríku. Vinsamlega hafið samband við hótel afgreiðsluna fyrir frekari upplýsingar snemma 23 júlí.

Farþegar eru á eftirfarandi hótelum:

Normandy
Erskine Bridge
Holiday Inn Express
Watermill Hotel