Þá er komið að því og reyndar gott betur. Fyrsta stóra flugfélag heimsins ætlar að meina börnum að fljúga í því skyni að auka ánægju flugfarþega.
Um er að ræða hið vinsæla Malaysian Airlines sem oftar en einu sinni hefur verið valið meðal bestu flugfélaga heims en flugfélagið hefur lengi íhugað að koma betur til móts við þá farþega sína sem illa þola barnagrátur um borð.
Til þess er flugfélagið reyndar ansi vel sett því í flota þeirra eru ein Airbus A380 vél og er það aðeins á efri hæðinni af tveimur í þeim vélum sem börn yngri en tólf ára fá ekki aðgang. Er þó um að ræða hefðbundið almenningsfarrými.
Þetta er hið jákvæðasta mál því um fátt er meira deilt meðal flugfarþega en annars vegar offitufarþegar og hins vegar sú truflun sem óneitanlega getur verið af ungum börnum. Sama flugfélag bannað alfarið börn yngri en tólf ára á dýrari farrýmum sínum í fyrra eins og Fararheill skýrði þá frá.
Sem sagt; vilji fólk frið og ró á lengri flugferðum með fyrirtaks flugfélagi er málið að panta efra farrými í A380 þotu Malaysian Airlines, koma sér fyrir, halla sér aftur og loka augunum.






