Tíðindi

Ný ofurþota sögð á teikniborðinu

  01/07/2012No Comments

Samkvæmt breska dagblaðinu Times er NASA í Bandaríkjunum með nýja ofurþotu á teikniborðinu en sú á að geta flogið fjórum sinnum hraðar en núverandi farþegaþotur.

Concorde þoturnar heyra fortíðinni til en mögulega eru enn hraðfleygari þotur á teikniborðinu

Ekki er þetta í fyrsta skipti sem hugmyndir heyrast um hraðfleyga farþegaþotu en með vaxandi flugumferð hefur krafan um hraða aukist jafnt og þétt og ekki dró úr þeirri kröfu eftir að Concorde þotunum var endanlega lagt fyrir nokkrum árum.

Fullyrt er þó að nú sé töluverð alvara að baki. Ekki aðeins er NASA að þróa verkefnið heldur og í samvinnu við þrjá helstu flugvélaframleiðendur Bandaríkjanna; Boeing, Gulfstream og Lockheed Martin. Fullyrðir Times að hugmyndin sé komin það langt að hún verði kynnt almenningi strax í næsta mánuði á Farnborough flugsýningunni.

Þykir ljóst að tæknin sé þegar til staðar til að smíða svo hraðfleyga þotu jafnvel þó að slík vél sé enn tíu til tuttugu árum frá raunveruleikanum. Stóra vandamálið sem vísindamenn glíma við og hafa gert lengi er hvernig á að takmarka þann mikla hvell sem myndast þegar hljóðmúrinn er rofinn. Slíkur hávaði varð þess valdandi á sínum tíma að Concorde var meinað að fljúga á mesta hraða yfir landi.