Pistlar

Við biðjumst forláts

  19/06/2012október 24th, 2021No Comments

Mögulega er það Íslandsmet að jafn lítill, kósí og yndislegur vefur og Fararheill.is sé fórnarlamb hatrammra hakkara aftur og aftur. Það er engu að síður raunin.

Niður en ekki úti. Fararheill til leiks á ný eftir tímabundin vandræði vegna hakkara

Þrívegis hafa tölvuóðir reynt að leggja Fararheill af velli og nú síðast í gær eins og dyggir lesendur hafa eflaust tekið eftir.

Á því vill ritstjórn biðjast forláts því þrátt fyrir ýmsar forvarnir sjáum við ekki við öllum og munum aldrei gera enda hakkarar ætíð skrefi á undan þeim er byggja og hanna varnir fyrir vefmiðla.

Hvers vegna hinn litli íslenski Fararheill þykir svo spennandi sem raun ber vitni skal ósagt látið en við eigum jú enga óvini…. nema ef vera skyldi flugfélögin og ferðaskrifstofurnar. Og þó.