Tíðindi

Hraðtilboð til fimm borga

  05/06/2012september 10th, 2021No Comments

Hægt er að velja milli fimm borga á nýjasta hraðtilboði Icelandair sem í boði eru til hádegis á morgun. Um er að ræða borgirnar Kaupmannahöfn, Gautaborg, Osló, Washington og Brussel.

Ný hraðtilboð Icelandair í boði í sólarhring

Tilboðin eru nokkuð sambærileg við það sem Iceland Express og Wow hafa verið að bjóða til Evrópu að undanförnu og bjóðast þannig ferðir aðra leiðina til Osló, Gautaborgar og Kaupmannahafnar á 14.900 krónur. Brussel aðeins dýrari á 16.900 og Washingtonferð kostar 27.900 krónur.

Ferðatímabilið í boði er þó mismunandi borganna á milli. Aðeins Gautaborg er í boði í júlí eða frá 27. júlí til 27. ágúst meðan hinar ferðirnar eru síðar í ágúst. Washington þó undantekning en flug þangað verður að eiga sér stað milli 5. september og 21. október í haust.

Heimasíða Icelandair hér.