Bangkok Tæland

Bangkok er ein allra vinsælasti áfangastaður Íslendinga

Þar er raunin hér á klakanum samkvæmt ferðaleitarvél Dohop.is.

Samkvæmt upplýsingum þaðan um ferðir Íslendinga frá júníbyrjun til ágústloka eru fjölmargir landar okkar að fara til Belgrað, Rómar og Bangkok þetta sumarið. Þangað kemst enginn í beinu flugi nema fuglinn fljúgandi.

Vitaskuld eru þó London og Kaupmannahöfn efst á listum Dohop fyrir sumarið 2012 og á ekkert að koma þar á óvart. Ekki aðeins eiga margir vini og ættingja í þessum borgum heldur er og úrval flugferða til þeirra allra mest.

Þess utan er London sennilegast sú borg sem flestir Íslendingar nota sem fyrsta áfanga ferða lengra út í heim enda þar bækistöðvar fjölmargra lágfargjaldaflugfélaga og ferðaskrifstofa sem almennt bjóða mun betur en innlendar ferðaskrifstofur.

Annars er listi Dohop yfir vinsælustu sumaráfangastaði Íslendinga þetta sumarið forvitnileg lesning. Þar má finna borgir sem eru ívið vinsælli en margir þeir staðir sem flugfélögin og ferðaskrifstofurnar bjóða ferðir til.

Vinsælustu áfangastaðir Íslendinga sumarið 2012 eru:

  1. Kaupmannahöfn, Danmörk vegvísir
  2. London, England vegvísir
  3. Alicante, Spánn – vegvísir
  4. Orlando, Bandaríkin vegvísir
  5. Bangkok, Thaíland – vegvísir
  6. New York, Bandaríkin – vegvísir
  7. Osló, Noregur – vegvísir
  8. Barcelóna, Spánn – vegvísir
  9. Róm, Ítalía – vegvísir
  10. Belgrað, Serbía