Pistlar

Svona er þá flug með Wow Air

  04/06/2012No Comments

Hluta ritstjórnar Fararheill.is gafst þess kostur að fara í jómfrúarflug hins nýja flugfélags Wow Air og getur því tæpitungulaust skýrt lesendum frá því hvernig vélar og þjónusta hins nýja flugfélags virkuðu en ýmsar neikvæðar sögur hafa gengið undanfarna mánuði um þær vélar sem hið nýja flugfélag brúkar.

Ólíkt sögusögnum um annað er aldeilis fínt að fljúga með vélum Wow Air

Ritstjórn er þeim annmörkum háð að telja að aukin samkeppni í flugi til og frá Íslandi sé afskaplega jákvæður hlutur fyrir land og sérstaklega þjóð.

Íslendingar hafa í raun og veru aldrei notið þeirra fargjalda eða tilboða sem hafa tíðkast erlendis, austan eða vestan, um áraraðir og það sýna og sanna rit og verðsamanburður gegnum tíðina. Ritstjórn finnst tími kominn til.

Þeirri skoðun deila ekki allir og sérstaklega ekki samkeppnisaðilar í fluginu enda ljóst að eigi að bjóða almúganum flug á eðlilegra verði en verið hefur minnka arðgreiðslur til ríkra eigenda flugfélaganna töluvert.

Fyrst er frá að segja að sama gerðist í jómfrúarflugi Wow Air og gerðist fyrsta daginn sem vélar flugfélagsins fóru í loftið með almenna farþega; tafir voru nokkrar og það telst aldrei jákvætt. Jómfrúarflugið fór ekki í loftið fyrr en klukkustund síðar en auglýst var.

Þá er næstum upptalið það neikvæða ef frátaldar eru stafsetningarvillur utan á vél félagsins. Stafsetningarvillur sem síðar kom í ljós að voru þar af ásettu ráði. Við leyfum lesendum um að leysa þá gestaþraut.

Airbus 320 vélin sem notuð var í jómfrúarflugið, og er ein af þeim vélum sem flugfélagið notar, var afskaplega þægileg og auðvelt að votta að aukið sætarými er vel þess virði þegar líða fer á flug. Vélin var hrein og fín þó ekki hafi verið í boði afþreyingarkerfi á borð við það sem Icelandair býður sínum farþegum.

Óhætt er að hæla flugmönnum þeirra ferðar, sem voru ítalskir, í hástert. Aldrei áður hefur meðlimur úr ritstjórn Fararheill upplifað að lenda tvívegis í röð án þess að finna fyrir því og það bókstaflega.

Wow Air hefur frá upphafi auglýst að þjónusta um borð verði fyrsta flokks og umfram það sem verið hefur annars staðar. Ritstjórn getur vottað að þjónustan var góð í jómfrúarferðinni en í raun ekki umfram góða þjónustu annarra flugfélaga.

Enginn varningur var í boði í jómfrúarferðinni og því ekki hægt að meta verðlag um borð en Wow auglýsir vöruverð í háloftunum 25 til 40 prósent ódýrar en gerist á jörðu niðri.

Bragarbót má þó gera á bæklingi þeim sem um borð er og á að kynna flugfélagið, stefnu þess og þjónustuna um borð. Sá var heldur rýr í roðinu og ætti kannski að láta verkin tala í þeim efnum fremur en hástemmdar yfirlýsingar. Þá dregur ritstjórn í efa að Íslendingar hafi gaman af endurunnum þýddum greinum um dásemdir Íslands úr dagblaðinu Reykjavik Grapevine.Við þekkjum dásemdir landsins okkar mætavel. Hér þarf að gera betur og ekki síst í ljósi þess að önnur afþreying er ekki um borð.

Sá matur sem fram var borinn reyndist ágætur en þar sem ekki fékkst staðfest hvort sami matur er á boðstólnum almennt í vélum Wow verður ekkert frekar ritað um hann.

Að þessu sögðu vonar ritstjórn sannarlega að Wow Air sé komið til að vera. Samkeppni er ekki bara af hinu góða; hún er af hinu frábæra.