Svo getur farið verkföll setji stórt strik í reikning norska lágfargjaldaflugfélagsins Norwegian á næstunni. Eru fastráðnir flugmenn þess langþreyttir á að sífellt stærri hluti flugmanna félagsins fá ekki fastráðningu og til greina kemur að efna til verkfall vegna málsins.

Hugsanlegt er að verkföll flugmanna lami starfsemi lágfargjaldaflugfélagsins Norwegian í byrjun næsta mánaðar
Yrði það í fyrsta skipti sem starfsmenn Norwegian færu í verkfall á þeim tíu árum sem liðin eru síðan flugfélagið tók til starfa en ef af verður hefst það eftir rúmar tvær vikur.
Hafa yfirmenn flugfélagsins í æ ríkara mæli ráðið til starfa flugmenn tímabundið á vélar sínar og komið þannig í veg fyrir fastráðningar með tilheyrandi aukakostnaði fyrir flugfélagið og ekki síður vandræðum fyrir flugmennina sem missa þannig ýmislegan rétt sinn.
Ólíklegt er að verkfall, komi til þess, hafi áhrif á flug Norwegian til Íslands en áætlunarflug milli Osló og Keflavíkur hefst snemma í júní.






