Um helgina átti sér stað nokkuð einstæður viðburður í Norður Kóreu. Þá var erlendum blaðamönnum boðið til landsins til að ganga úr skugga um að eldflaug sem skjóta skal á loft á næstunni sé aðeins til að koma á loft gervihnetti en ekki til að sprengja mann og annan.
Það var þó ekki það einstaka eins og meðfylgjandi frétt frá Reuters ber með sér heldur hitt að til að komast að skotpallinum þurfti að ferja blaðafólkið fimm klukkustunda leið með lest um landið. Og slíkur aðgangur hefur ekki fengist til handa erlendum blaðamönnum áður.
Á myndbandinu má því sjá brot af því hvernig meirihluti íbúa landsins búa í sveitunum en ekki aðeins í höfuðborginni Pyongyang þar sem blaðafólk erlent fær aðeins að sjá það sem leiðtogar Norður Kóreu vilja að þeir vitni.
Ekki svo að skilja að ferðafólk geti auðveldlega komist til Norður Kóreu heldur eða hafi á því mikinn áhuga en þegar og ef það einhvern tíma gerist má ljóst vera að í landinu er lítið merkilegt að sjá og af myndbandinu að dæma er veðurfarið heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir.







