Tíðindi

Ferðamenn rændir í Puerta Vallarta

  29/02/2012ágúst 29th, 2021No Comments

Siglingafyrirtækið Carnival Cruises hefur tímabundið hætt við allar skipulagðar ferðir sínar frá skipshlið í borginni Puerta Vallarta í Mexíkó eftir að rúta full af ferðamönnum var rænd í gær. Er þetta enn eitt dæmið um að yfirvöld í Mexíkó virðast illa ráða við að vernda sína helstu ferðamannastaði við glæpamönnum.

Flestir vita af ástandinu Mexíkómegin við landamærin að Bandaríkjunum þar sem viðurstyggileg morð eru það algeng að þau komast vart í dagblöð. Færri vita að smátt og smátt hafa glæpamenn og gengi fært sig upp á skaftið og glæpir á vinsælum ferðamannastöðum á Yukatanskaga færast í aukanna.

Skemmtiferðaskip sem stoppa dagsstund í Puerta Vallarta skipta tugum í viku hverri og er þá gjarnan í boði skipulagðar skemmri ferðir inn í land.

Það var einmitt í einni slíkri ferð sem heil rúta var rænd á leiðinni en þá stálu hettuklæddir misyndismenn öllu steini léttara af 22 farþegum af skipinu Carnival Splendour. Voru þeir vopnaðir og enginn veit hvað gerst hefði ef einhver farþeganna hefði maldað í móinn.

Puerta Vallarta er einn áfangastaður ferðar sem Vita ferðir bjóða næsta haust.