Tíðindi

Mörgæsir í eyðimörkinni í Dubai

  26/02/2012janúar 9th, 2015No Comments

Þá er það opinbert. Mörgæsir lifa nú góðu lífi í hinni hörðustu eyðimörk en þó með þeim formerkjum að þær eru undir þaki. Og það æði stóru þaki.

Mörgæsir dandalast nú tugum saman innan veggja einnar stærstu skíðamiðstöðvar heims sem aftur er undir þaki einnar allra stærstu verslunarmiðstöðvar heims; Mall of Emirates í Dúbaí.

Þar er eitt besta skíðasvæði heims sem alfarið er innandyra og er hundrað prósent mannanna gerð. Ski Dúbaí er æði vinsæll staður enda velflestir íbúar landsins og reyndar allra Mið Austurlanda lítið vanir skjannahvítum snjó.

En emírnum fannst eitthvað vanta samt þegar Ski Dúbaí opnaði dyr sínar. Ekki dugði 60 metra lofthæð yfir fimm tiltölulega langar skíðbrekkur og góða hálfpípubraut fyrir brettafólk í 25 þúsund fermetra skíðahöllinni. Nei! Emírinn vildi annað og meira og nú stanglast þar á skíðasvæðinu einar 30 mörgæsir af Suðurskautinu eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Það er að sjálfsögðu frábært fyrir smáfólkið og aðra mörgæsaaðdáendur enda fá dýr jafn heillandi með sitt mannlega göngulag þó draga megi í efa að mörgæsirnar sjálfar séu ýkja spenntar fyrir breytingaskeiði sínu. Er um að ræða hinar skemmtilegu Kóngamörgæsir sem svo margir þekkja úr bæði kvik- og heimildamyndum.

Heimasíða Ski Dubai hér.