Skemmtiferðaskip í langri siglingu er sennilega síðasti staður sem þú vilt vera á þegar grimm niðurgangspest eða eitthvað þaðan af verra kemur upp um borð.
Það er akkurat það sem farþegar þriggja skemmtiferðaskipa hafa glímt við að undanförnu. Nóróvírusinn sem veldur miklum niðurgangi, uppköstum og magakrampa er bráðsmitandi veira og þá sérstaklega gegnum matvæli eða með snertingu við sýktan einstakling.
Tvö af skipum Royal Caribbean skipafélagsins hafa seinkað brottförum frá Miami í Flórída eftir að mikill pest herjaði á farþega í síðustu ferðum og eitt enn er á leið í land á undan áætlun þegar þetta er skrifað vegna sama vandamáls.
Slíkar sýkingar eru æði algengar í lokuðum rýmum og er eitt af því sem sjúkrahús og elliheimili glíma oft á tíðum við. Þar er þó hægt að forða sér út eða panta aðkeyptan mat en slíkt er ekki í boði um borð í skemmtiferðaskipum eðli málsins samkvæmt.






