Tíðindi

Besta verð vart samkeppnishæft

  26/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Rúmum þrjátíu þúsund krónum dýrara er fyrir einstakling að fljúga í rúmar fjórar klukkustundir og frá Keflavík til Faró í Portúgal og tilbaka en það kostar að fljúga í rúmar fjórar klukkustundir milli Osló og Faró og tilbaka.

Nýjasta ferðaskrifstofa Íslendinga, Ferð.is, sem stærir sig af því að bjóða ódýrar ferðir á netinu er sú eina* sem býður beint flug með áætlunarflugi til Portúgal í sumar. Verð á mann báðar leiðir er 77 þúsund krónur eða 154 þúsund fyrir hjón og 308 þúsund fyrir fjögurra manna fjölskyldu.

Það er dapur díll miðað við það sem býðst með lágfargjaldaflugfélaginu Norwegian frá Osló en þaðan til og frá Faró bjóðast ferðir kringum 45 þúsund krónur á mann í júní og að hluta til í júlí og ágúst. Reyndar er einnig hægt að finna bæði lægri og mun hærri fargjöld en það ef svo ber undir.

Engu að síður er munurinn sláandi því Fararheill ber þetta saman sökum þess að flugtími frá Keflavík og Osló til Faró á Algarve er svipaður eða rúmar fjórar klukkustundir. Það útilokar að hægt sé að gefa mismunandi flugtíma sem ástæðu verðmunarins.

Fjögurra manna fjölskyldan í Osló getur því komist til Faró fyrir 184 þúsund krónur í stað 308 þúsund héðan. Flug þangað kostar gróflega milli 35 og 40 þúsund á mann með Icelandair og því kostar fargjaldið til norsku borgarinnar sömu fjölskyldu um 160 þúsund sem auðvitað borgar sig ekki þó aðeins muni 30 þúsund krónum.

En ritstjórn veltir fyrir sér hvort gera megi hér betur en Ferð.is gerir.

* Móðurfélag Ferð.is, Vitaferðir, bjóða einnig ferðir til Algarve en eingöngu pakkaferðir með hótelum.

** Miðað við gengi 26. janúar gagnvart norskri krónu