Tíðindi

Stolið úr töskum íslenskra farþega

  20/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Stuldur úr ferðatöskum íslenskra ferðamanna er vaxandi vandamál samkvæmt upplýsingum Fararheill frá tryggingafélögum hérlendis. Stuldurinn á sér stað meðan farangurinn er í umsjón flutningsaðila.

Fengust þau svör þegar Fararheill óskaði eftir að töluvert væri um að ferðalangar leituðu til tryggingafélags síns vegna stuldar úr ferðatöskum sínum. Engar tölur voru nefndar í því sambandi né heldur fengust nánari upplýsingar um fjölda slíkra mála eða hvort lögreglu hefði verið falið að rannsaka málið til hlítar.

Koma upplýsingarnar á óvart þar sem samkvæmt bókum Flugmálastjórnar, þangað sem fólki ber að koma kvörtunum vegna þjónustu eða atvika á flugferðalögum sínum, er æði lítið um slíkar tilkynningar. Aðeins finnast örfáar kvartanir um þjófnað úr töskum á þeirra listum.

Þó engan veginn sé hægt að fullyrða neitt miðað við takmarkaðar upplýsingar verður að telja líklegt að einhver hluti þjófnaðarins fari fram í Leifsstöð. Þó hefur aðeins ein kvörtun um stuld úr tösku þar komið á borð Flugmálastjórnar eftir því sem best verður séð.

Hafa margsinnis undanfarin ár komið víða upp mál þar sem starfsmenn á flugstöðvum hafa stundað þjófnað úr töskum og það jafnvel með skipulögðum hætti um árabil áður en upp komst. Frægt er mál frá Mílanó en síðustu tvö árin hefur þetta verið stórt vandamál meðal annars í Bretlandi og Póllandi.

Er sennilega aldrei of oft ítrekað að pakka ekki verðmætum hlutum í ferðatöskur heldur taka slíkt í handfarangur og þannig koma í veg fyrir að stuldur skemmi fríið.