Það er tómlegt um að litast á hótelum í Bangkok, höfuðborg Tælands, þessi dægrin. Flóðin í borginni hafa haft þau áhrif að ferðamenn halda sig fjarri.
Þó flóðin, þau mestu í tæp 50 ár, séu smátt og smátt í rénun er stór hluti borgarinnar undir vatni og þó það eigi ekki við um helstu ferðamannastaðina í miðborginni hefur gistinóttum á hótelum fækkað um helming frá árinu 2010 frá því að flóðin hófust.
Er málið alvarlegt því ferðaiðnaður er stór atvinnuvegur í landinu og nálega 80 prósent ferðamanna sem hingað koma eyða einhverjum tíma og peningum í höfuðborginni. Öllu alvarlegra er að spár gera ekki ráð fyrir að götur Bangkok verði orðnar þurrar að nýju fyrr en eftir áramótin næstu í fyrsta lagi. Miðast þær spár við að ekki rigni mikið meira en þegar er orðið fram að þeim tíma.
Ekki eru slík vandamál á öðrum vinsælum ferðamannastöðum í landinu. Pattaya, Phuket og eyjurnar undan strönd Tælands glíma ekki við flóð eins og höfuðborgin þó reyndar flætt hafi yfir margar götur Pattaya um tíma.






