Pistlar

Slæmt umtal betra en ekkert

  03/10/2011desember 5th, 2014No Comments

Flestir þeir sem fréttir lesa geta verið sammála um að fá fyrirtæki hafa fengið eins mikið á baukinn í fjölmiðlum síðustu misserin og ferðasalinn Iceland Express. En það virðist litlu breyta því þeim fjölgar statt og stöðugt sem með félaginu fljúga. Sannast kannski þar hið fornkveðna að slæmt umtal er betra en ekkert umtal.

Samkvæmt tölum frá breskum flugmálayfirvöldum er Iceland Express nú að nálgast helmings markaðshlutdeild í flugi millli London og Íslands en þann markað hefur Icelandair átt mikið til skuldlaust síðustu árin og áratugina.

Þannig flugu rúm 48 prósent allra sem fóru milli London og Keflavíkur í ágúst með Iceland Express sem þýðir að Icelandair hefur flutt tæplega 52 prósent þar sem engir aðrir fljúga reglulega þar á milli.

Hafa verðprufur ritstjórnar Fararheill staðfest að til og frá London er Iceland Express oftar með hagstæðari verð á fargjöldum en samkeppnisaðilinn eins og sjá má hér.

Þó einhver hluti farþega á þessari leið séu aðeins að millilenda virðist það sannast hér að þegar upp er staðið skiptir verðmiðinn höfuðmáli fyrir almenning jafnvel þó umtal sé neikvætt. Er enda heildarfjölgun farþega Iceland Express milli ára um 70 þúsund manns.