Allur er varinn góður segir orðatiltæki og ekki að ósönnu. Ráðlegt er sennilega að bíða með að fljúga til Englands í nóvember því ef fram heldur sem horfir hefjast þar mikil og víðtæk verkföll hjá fjölda aðila sem munu hafa áhrif á ferðamenn.
Hafa verkalýðsleiðtogar í landinu keppst við að opinbera þann ásetning sinn að efna til verkfalla og það eins lengi og þörf krefur vegna hugmynda stjórnvalda að skerða opinberar lífeyrisgreiðslur til milljóna manna.
Alla jafna koma verkalýðsdeilur lítið við ferðamenn en meðal félagsmanna í þeim verkalýðssamtökum sem hótað hafa verkföllum eru starfsmenn járnbrauta, jarðlesta, flugvalla og fleiri aðila sem tengjast ferðaþjónustu. Ekki er útilokað að flug geti raskast og almenningssamgöngur örugglega verði af verkföllum og slíkt getur sett strik í reikning ferðalanga.
Mun Fararheill.is fylgjast áfram með þróun mála en kannski er ekki besta hugmynd í heimi að ætla sér að heimsækja Bretland í nóvember.






