Allar flugferðir til og frá New York liggja niðri og munu liggja niðri til tíu í fyrramálið ef marka má flugáætlun Keflavíkurflugvallar. Má þar sjá að bæði Iceland Express og Icelandair hafa aflýst öllum ferðum sínum til New York fram til tíu í fyrramálið.
Orsökin er fellibylurinn Irena sem nú bylur útifyrir ströndum New York og er óttast borgaryfirvöld að það gæti haft í för með sér flóð í hlutum borgarinnar.
Eru allir flugvellir í ríkinu lokaðir þó enn sé Boston Logan völlur opinn en sá gæti einnig lokað ef fellibylurinn heldur áfram för sinni upp austurhluta Bandaríkjanna. Þá er flugvöllurinn í Washington opinn og flug þangað með eðlilegum hætti þegar þetta er skrifað.
Bæði Icelandair og Iceland Express bjóða farþegum sínum sömu skilmála vegna þeirra áætlunarferða sem fella hefur þurft niður. Eru endurgreiðslur farmiðans í boði, breyta dagsetningu flugs og fara síðar eða breyta áfangastað gegn milligreiðslu sé um slíkt að ræða.
Sjá nánar stöðu mála á vef Keflavíkurflugvallar hér.






