Tíðindi

Hættulaust í Japan

  18/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Það er erfitt að finna ekki til með Japönum. Ólíkt íslensku eldgosunum sem virðast vart gera annað en auka áhuga erlendra ferðamanna á Íslandi búa Japanir ekki við neitt slíkt eftir flóðbylgjuna sem lagði hluta landsins í rúst. Þvert á móti telja fjölmargir að landið sé meira og minna geislavirkt og ekki sé óhætt að ferðast þar um.

Það er hins vegar misskilningur því ef frá er talinn sá hluti landsins sem varð verst úti í jarðskjálftunum og flóðbylgjunum í kjölfarið í mars síðastliðnum er Japan ekki hættulegra nú en það var áður. Sannarlega er ekki meiri geislavirkni í borgum þar en gengur og gerist annars staðar.

Hafa ferðamálayfirvöld í landinu reynt að koma þessu á framfæri og birta á vef sínum útreikninga um geislavirkni í nokkrum borgum heims.

Sést þar svart á hvítu að geislavirkni í Tókío er á pari við það sem gerist í Berlín í Þýskalandi og mun minni en í New York í Bandaríkjunum.

Vonast Japanir til að hrun í ferðamannabransanum bætist ekki við kostnaðinn vegna skjálftanna í mars en síðan þá hefur ferðamönnum til landsins fækkað um rúm 60 prósent.