Tíðindi

Aðstoðarmaður ráðherra þegir þunnu hljóði

  07/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Ekki svo mikið sem eitt múkk hefur komið frá aðstoðarmanni Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna fyrirspurna ritstjórnar Fararheill vegna gjaldeyrisfrumvarps ráðherrans. Er þó verið að herða verulega allt eftirlit með íslenskum ferðamönnum.

Óskaði Fararheill.is upplýsinga um með hvaða hætti ráðuneytið sæi fyrir sér að hátta eftirliti með að ferðafólk skili öllum gjaldeyri sínum við komu til landsins eins og frumvarpið gerir ráð fyrir.

Þá var ennfremur óskað upplýsinga hvernig fylgst yrði með eyðslu íslenskra ferðamanna erlendis en minnst eitt íslenskt kortafyrirtæki hefur lýst yfir að það muni ekki láta neinum í té slíkar upplýsingar. Að síðustu vildi ritstjórn vita hvaða viðurlög væru við brotum á þeim reglum sem til stendur að setja.

Skemmst er frá að segja að Kristrún Heimisdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, hefur ekki svarað erindinu. Liggur því ekkert ljóst fyrir um neitt þessara atriða.