Tíðindi

Spá fimmtán prósenta hækkun á flugfargjöldum

  04/05/2011nóvember 27th, 2014No Comments

Sérfræðingar ferðamiðilsins Bing, sem er að fullu í eigu Microsoft, áætla að flugfargjöld á heimsvísu hækki um fimmtán prósent í ár frá fyrra ári. Þá mun gistikostnaður einnig hækka en þó aðeins um sjö prósent að meðaltali.

Ár hvert leggja sérfræðingar Bing, sem áratugareynslu hafa af ferðamálum, haus í bleyti og spá fyrir um vertíðina í ferðamennsku á heimsvísu en nú er einmitt upphaf hins eiginlega ferðamannatíma á vesturlöndum og víðar.

Þarf reyndar ekki spádómsgáfu til að vita að flugfargjöld muni hækka og er það ferli í raun þegar hafið enda olíuverð hækkað töluvert umfram spár og flugfélög flest kaupa mikið og dýrt eldsneyti.

Mæla spekingarnir með að panta flugfargjöld fyrr en síðar því frekari hækkanir séu í pípunum. Undir það tekur ritstjórn Fararheill.is og hvetur fólk til að íhuga óvenjulegar leiðir til að komast í frí án þess að kosta til þess hand- og fótlegg.