Síðast í gær spáðum við að markaðsvirði Icelandair færi niður fyrir fimm milljarða króna á viku eða tveimur. Líklega vorum við of bjartsýn.

Þegar þetta er skrifað hefur gengi Icelandair á Nasdaq fallið um 5,7% þennan daginn og markaðir enn opnir. Eitt stykki bréf í flugfélaginu kostar nú eina krónu og 64 aura og engar jákvæðar fréttir framundan. Sem merkir að flugfélagið gæti orðið einskis virði næstu sólarhringa.

Líkurnar á að vitibornir fjárfestar telji hagkvæmt að taka þátt í tugmilljarða króna hlutafjárútboði þegar flugfélagið sjálft telur ólíklegt að ná sæmilegum styrk á ný fyrr en árið 2024 eru langsóttari en að klór lækni fólk af kórónavírusnum.

Linnulaust fallið vekur líka upp feitar spurningar um ríkisábyrgð og ríkisaðstoð við þetta einkafyrirtæki. Eru það ekki bara góðir peningar á eftir vondum? Er ekki bara ráðlegt að leggja Play til tugmilljarða í stað Icelandair svo við eigum kost á því að fljúga eitthvað næstu misserin?