Vel kann að vera að almennt hugsi fólk ekki mikið um aldur þeirra millilandavéla sem ferðast er með til og frá landinu en okkur hjá Fararheill finnst alltaf eitthvað stórskrýtið við að fljúga með rellum sem enn hafa öskubakka í sætisörmum.

Það er raunin í velflestum þotum Icelandair en eftir leit á netinu þá finnum við aðeins tvö flugfélög hvers þotur eru eldri að meðaltali en raunin er hjá Icelandair meðal vestrænna flugfélaga. Illu heilli tengjast þau bæði Íslandi því vélar flugfélagsins Air Atlanta eru komnar yfir tvítugsaldurinn að meðaltali, 20,8 ár, auk þess sem vélar Avion Express sem hafa verið í notkun að einhverju leyti hjá Wow Air eru sömuleiðis komnar yfir tvítugt.

En Air Atlanta flýgur ekki til og frá Íslandi mikið og heldur ekki vélar Avion Express meðan Icelandair gerir fátt annað. Og það væri lygi ef við segðumst ekki hafa nokkrar áhyggjur af því að svo virðist sem Icelandair sé að fljúga elstu vélum að meðaltali í Evrópu sé mark takandi á tölum Airfleets.net en á þeim byggir taflan hér neðar.

Það fyllir okkur enn meiri áhyggjum að það sem af er árinu hafa orðið sex vélarbilanir, sem við vitum af, hjá Icelandair. Fyrir utan vitaskuld að hjól féll af einni vél þeirra fyrir rúmu ári síðan en rannsókn þess atviks er hvergi nærri lokið. Vekur reyndar athygli hversu fjölmiðlar landsins eru lítt áhugasamir um jafn alvarlega vélarbilun.

Online Graphing
graph and charts

Að frátöldu leiguflugfélaginu Avion Express eru öll helstu flugfélög að nota vélar sem eru töluvert yngri en Icelandair býður okkur. Hafa skal í huga að hér er um meðaltalsaldur að ræða og því helmingur véla Icelandair mun eldri en 17.8. Vélarnar Surtsey, Öræfajökull og Laki eru allar yfir tvítugt og aldursforsetinn er Eyjafjallajökull sem nálgast 24 ára afmælið. Merkilegt er að þær tvær vélar sem Icelandair keypti og tók í notkun fyrr á árinu, Laki og Eldfell eru báðar komnar yfir 22 ára aldurinn.

Hversu öruggar eru gamlar vélar?

Fræðingar sem til þekkja segja í raun ekkert að því að fljúga vélum út í hið óendanlega svo lengi sem viðhald er fyrsta flokks en kostnaður og tími við eftirlit og viðgerðir eykst gríðarlega þegar vélar eru komnar á unglingsaldur. Sem þýðir minni tíma í loftinu og engar tekjur á meðan.

Þá skiptir og máli í þessu sambandi hvort eldri vélar hafi sína tíð flogið skemmri eða lengri leiðir en því skemmri sem hvert flug er því oftar er farþegarými þrýstijafnað og afþrýstijafnað en slíkt setur pressu á bol vélanna í hvert sinn. Svo ekki sé minnst á meira álag á lendingarbúnað. Skemmst er að minnast flugslyss árið 2011 þegar Boeing 737-300 vél Southwest flugfélagsins þurfi að nauðlenda eftir að eldsneytistankur vélarinnar sprakk. Þegar í ljós kom að málmþreytu var um að kenna urðu fræðingar Boeing furðu lostnir enda vélin aðeins fimmtán ára gömul eða fimmtán árum yngri en spekingarnir töldu líklegt að málmþreyta yrði vandamál. Og þar voru á ferðinni sérfræðingar Boeing.

Staðreyndin virðist þó vera að Icelandair rekur einhvern elsta flugflota Evrópu og þótt víðar væri leitað og langtum eldri en eðlilegt þykir hjá helstu samkeppnisaðilum eins og meðfylgjandi tafla ber glögglega með sér. Meðalaldur flugflota stóru flugfélaganna í Bandaríkjunum er 11 ár meðan hann er tíu ár að meðaltali hjá evrópskum flugfélögum að því er fram kemur hjá Flight Safety Foundation.

Upp, upp mín vél og allt mitt geð

Forráðamenn Icelandair vita þetta allt mætavel og sennilega fyrir alllöngu síðan því mjög erfitt er að spara í rekstri þegar vélar eru komnar svo mjög til ára sinna eins og allir sem eiga gamla eða lúna bíla geta vottað. Fararheill giskar á að aldur véla fyrirtækisins hafi til dæmis eitthvað með það að gera að miklar tafir hafa orðið á að setja upp þráðlaust net í vélum Icelandair eins og stefnt hefur verið að um tíma.

Í lok síðasta árs festi Icelandair kaup á tólf nýjum Boeing MAX vélum og eiga þær fyrstu að taka til flugs undir merkjum Icelandair árið 2018. Nema þær vélar er enn verið að hanna og þróa og miðað við gríðarlegar tafir á afhendingu fyrstu Dreamliner véla fyrirtækisins er ekki alveg loku fyrir skotið að tafir verði á því. Þá verður meðalaldur flota Icelandair kominn vel yfir 20 árin að óbreyttu.