Úfff! Aðeins örfá ár síðan Ísavía eyddi tugmilljónum króna til að auglýsa að Leifsstöð hefði nú hlotið verðlaun sem einhver allra besti flugvöllur heims meðal minni flugvalla. Þær auglýsingar birtast ekki lengur og fyrir því góð ástæða 😉
Eflaust margir þarna úti sem muna eftir feitri auglýsingaherferð Leifsstöðvar hér fyrir örfáum árum síðan þar sem menn stærðu sig af frábærri einkunn flugvallarins hjá einhverri alls ókunnri stofnun. Gott ef það voru ekki silfurverðlaun í flokki smærri flugvalla. Og það var starfsfólk Leifsstöðvar sem framkvæmdi könnunina 🙂
Fallið getur verið hátt þegar menn stæra sig hægri vinstri…
Væri allt eðlilegt ætti Isavía líka að auglýsa nú að Leifsstöð er talinn sautjándi VERSTI flugvöllur Evrópu og það af hálfu notenda flugþjónustunnar AirHelp. Sá vefur sérhæfir sig í að leita bóta fyrir þá flugfarþega sem telja sig hafa verið hlunnfarna á ferðum sínum. Og Leifsstöð er jú rekin af Ísavía sem er ríkisfyrirtæki og á að gæta þess að allar hliðar máls komi fram. Allavega ef marka má samkomulag stjórnarflokkanna sem nú ráða ríkjum. Allt skal uppi á borðum.
Ók, látum það loforð liggja milli hluta.
En engum vafa er undirorpið að Leifsstöð er ekki alveg að rokka þessi dægrin. Að hluta til eðlilegt; flugvöllurinn aldrei hannaður fyrir þann mikla fjölda sem nú lendir hér og eyðir tíma. En slæmt ástand líka Ísavía að kenna. Sæti fyrir þá sem ekki ætla að kaupa eitthvað á okurverði eru sirka ellefu talsins. Setjist fólk annars staðar er umsvifalaust komið pólskumælandi fólk að reka mann burt því ekkert var keypt. Láti fólk sig hafa það að versla kaffi og kleinu er óhætt að hringja í bankastjórann og fá lán eða yfirdráttarheimild. Hér kostar allt formúgur og allavega tvöfalt það sem hlutirnir kosta almennt á dýra Íslandi. Eða hver hefur áhuga á skitinni hangikjötssamloku á þúsund kall og dós af Pepsi á 500 krónur?
Þyki gestum Ísland dýrt land heimsóknar er Leifsstöð ekki beint að bæta þá upplifun. Þrátt fyrir tollfrjálsa verslun og veitingar er hér megaofurálagning á nánast öllu með stöku undantekningum í Fríhöfninni. En reyndu að kaupa bjór og Pringles í Fríhöfninni og setjast svo niður og njóta fyrir flug. Illa launaðir öryggisverðir mættir á svipstundu til að tilkynna þér að óheimilt sé að borða eða drekka utan afmarkaðs veitingasvæðis. Og þar þarftu að kaupa drasl til að vera.
Við gætum haldið áfram með böggið. Hvaða rugl er að hafa tvö innritunarborð opin fyrir 180 farþega??? Eða senda liðið í rútum út í vél sem staðsett er nálægt Sandgerði þegar alls engar vélar eru fyrir utan næstu útganga?
Ítrekum hér sem við höfum sagt lengi vel: út með stjórn Ísavía. Það lið handónýtt frá A til Ö.







