Seint verður sagt að það sé ýkja flókið mál að innrita sig í flug þessa síðustu og verstu. Það er jú ekki lengur svo að fólk þurfi að standa í hálftíma í röðum við afgreiðsluborð eins og reyndin var fyrir tíu árum síðna.

Bið á innritunarborði eða innritunarsjálfsölum? Ekki lengur ef þú flýgur með Wizz Air.
Þó það ferlið allt hafi batnað til muna þegar flugvellir og mörg flugfélög hófu að bjóða upp á sjálfsinnritun í þartilgerðum sjálfsölum þá má alltaf gera betur. Og það er nákvæmlega það sem ungverska flugfélagið Wizz Air bryddar upp á nú.
Nú þurfa flugfarþegar þess flugfélags ekki lengur að hafa minnstu áhyggjur af innritun eða að fá brottfararpassa. Innritun gerist sjálfkrafa og brottfararspjald er sent í símann þinn í kjölfarið ef þú hakar við þá tilteknu þjónustu við bókun.
Þú rúllar framhjá sjálfsölunum brosandi út að eyrum og getur tjillað á barnum 20 mínútum lengur en hinir sem þurfa að bíða eftir lausum sjálfsala eða lausum starfsmanni á innritunarborði.
Eitt stykki lúxusvandamál heyrir sögunni til. Allavega hjá Wizz Air.







