Tíðindi

Vildarpunktatilboð Icelandair

  25/01/2011nóvember 21st, 2014No Comments

Frá miðnætti 26.janúar geta vildarklúbbsfélagar Icelandair keypt ferðir til fjögurra mismunandi borga næstu þrjá mánuði á helmings afslætti en tilboðið gildir aðeins í einn sólarhring.

Er um ágætan díl að ræða eigi fólk vildarpunkta en borgirnar sem um ræðir eru Osló, Amsterdam, Frankfurt og Seattle en flugvallaskattar og aðrar greiðslur eru ekki innifaldar.

Þannig kostar nú ferðin til Seattle 35.000 vildarpunkta en ferðast verður milli 2. febrúar og 14. apríl. Amsterdam ferð fæst á 19 þúsund vildarpunktum og gildir frá 1. febrúar til 15.apríl. Osló kostar sömuleiðis 19 þúsund vildarpunkta en ferðast má þangað fram til 17. apríl. Fyrir ferð til Frankfurt þarf að punga út 21 þúsund punktum en ferðast má fram til 9. maí og því hægt að ná í skottið á alvöru vori í Evrópu.

Heimasíða Icelandair hér.