F aux pas heitir það á frönsku þegar ferðafólk móðgar gestgjafa sinn á einhvern hátt í veröldinni. Gallinn sá að misjafn siður er í hverju landi og nánast ómögulegt að vita fyrirfram hvað þykir miður og hvað ekki.
Fjölmargar sögur eru til af einföldustu hlutum, að því er okkur finnst, sem fara afar illa niður í fólk í fjarlægum heimsálfum og stundum er móðgunin það alvarleg að það jaðrar við lög.
Seint verður hægt að útbúa tæmandi lista yfir það sem má og ekki má í hverju landi fyrir sig en Fararheill.is hefur tekið nokkur dæmi saman sem bæði eru fræðandi en einnig nokkuð skondin fyrir þá sem öðru eru vanir.
♥ Í Ástralíu er vænlegast að setjast í framsætið á leigubílum því annars ertu að móðga bílstjórann verulega. Skýrist það af arfleifð Ástrala sem bresk fanganýlenda og með því að setjast aftur í eins og venjan er á Íslandi ertu að gefa í skyn að bílstjórinn sé þér óæðri.
♥ Í íslömskum löndum máttu aldrei nokkurn tíma sýna öðrum skósóla þinn því það er grófasta móðgun. Í Íslam er ilin það aumingjalegasta á líkama nokkurs manns og að sýna hana, jafnvel þótt þú sért aðeins að krossleggja fæturna, þykir hræðileg hneisa.
♥ Þú mátt eiga von á augngotum og jafnvel hnussi frá nálægum borðum ef þú notar vinstri höndina til að borða með í Indlandi. Skýringin sú að þar sem innlendir borða með fingrunum nota þeir hægri höndina til þess og þá vinstri í allt annað eins og að skeina sér.
♥ Ókei merkið er langt í frá ókei víða í heiminum. Með því að mynda hring með þumlinum og löngutöng til að gefa til kynna ánægju með eitthvað ertu oftar en ekki að gefa allt annað til kynna. Í Brasilíu ertu að lýsa því yfir að viðkomandi sé hommi eða lesbía. Í Kína stendur táknið fyrir rassgat og jafnvel í Frakklandi gefur OK merkið til kynna að eitthvað sé athugavert.
♥ Annað vinsælt vestrænt merki, þumall upp, er ekki alveg að gera sig á sumum stöðum. Hvort sem þú ert að gefa í skyn ánægju eða að húkka bílfar þýðir þetta merki að þú lýsir frati á viðkomandi ef ferðalangurinn er staddur í Nígeríu.
♥ Það er algjör ókurteisi að líta ekki í augun á hverjum sem situr við borðið þegar skálað er í Tékklandi en aðeins sunnar í Evrópu, í Rúmeníu, skála menn alls ekki. Þar er skálin tákn um einræðisherra og tímabil sem allir vilja gleyma.
Dásamlegi heimur ekki satt 🙂





