Sautjánda apríl 2017 var Boeing 737-700 vél Southwest flugfélagsins á góðri leið frá New York til Dallas þegar eitt stykki hreyfilblað brotnaði af sísona, endasendist í skrokk vélarinnar og braut þar eitt stykki rúðu. Afleiðingarnar þær að einn farþegi sogaðist að hluta til út med det samme og þarf vart að spyrja að leikslokum á þeim bænum.

Sjö þúsund Boeing 737 vélar beint í skúrinn samkvæmt úrskurði NTSB. Skjáskot
Klúðrið hjá flugvélaframleiðandanum Boeing virðist engan endi taka. Allar Max-vélar framleiðandans safna ryki á flugvöllum hér og þar um veröldina og nú hafa flugmálayfirvöld vestanhafs kveðið upp sinn dóm um eldri 737-vélar fyrirtækisins. Hvorki fleiri né færri en SJÖ ÞÚSUND vélar skulu inn í flugskúr hið snarasta.
Það þykir lítt til eftirbreytni að eitt skitið vélarblað úr hreyfli Boeing 737 vélar geti rifið stórt gat á skrokk vélarinnar sem var einmitt raunin þegar manneskja sogaðist út þennan örlagaríka dag árið 2017.
Ekki nóg með að flugmálayfirvöld vestanhafs vilji sjö þúsund rellur í skúrinn eigi síðar en í gær heldur og er niðurstaða þeirra að skrokkur eldri 737-véla Boeing sé einfaldlega ekki nógu traustur til að þola högg af neinu taginu. Vandamálið sé verkfræðilegs eðlis og á því þarf Boeing að ráða bót sem fyrst að því er fram kemur í grein á Independent.
Ef þetta er ekki síðast naglinn í kistu þessa annars ágæta fyrirtækis…







