Þ rátt fyrir faraldur og almennt hallæri á heimsvísu halda Kínverjar áfram að gera lítið úr Kananum. Vestanhafs mestallur infrastrúktúr að hruni kominn en í alþýðulýðveldinu setja menn hvert metið á fætur öðru. Nú síðast með byggingu hæstu útilyftu heims.

Engin tilviljun að þessi staður varð fyrsti verndaði þjóðgarður Kína árið 1982. Stórkostlegt náttúrufyrirbrigði. Skjáskot
Ýmislegt miður má segja um kínversk stjórnvöld og járnkrumlu þeirra á högum og háttum þegna sinna. En það verður ekkert tekið af þeim að þegar þeir ákveða að gera eitthvað er það gert á fimm mínútum sléttum. Gildir einu hvort um er að ræða 50 þúsund manna sjúkrahús, 40 hæða blokk eða hæstu útilyftu heims.
Það er hið síðastnefnda sem vakti athygli okkar nýverið en lyftan atarna húrrar fólki 330 metra upp á tind eins hinna fjölmörgu sandsteinstinda sem heilla fólk í Zhangjiajie-þjóðgarðinum. Sandsteinstindar sem rísa 400 til 700 metra lóðbeint upp á við og eru flestir vel gróðri vaxnir líka (sjá mynd.) Sagan segir að tindar þessir hafi verið innblásturinn að hinum frægu kvikmyndum Avatar.
Heimilt hefur verið að klífa tindana en það kostar töluverða fyrirhöfn og tekur vant fjallafólk að lágmarki þrjár stundir að toppa hvern klett. Eðli máls samkvæmt eru Jón og Gulla ferðamenn ekkert að láta sig hafa það. Allavega þangað til nú 🙂
Heimamenn hafa nefninlega hamrað eina stóra lyftu inn í bergið á besta stað og nú geta bæði Jón og Gulla dúllað sér upp á tindinn á tveimur mínútum sléttum. Það í ofanálag við að geta þvælst talsvert um svæðið í kláfum líka.
Og svona ef hæsta útilyfta heims þykir ekki alveg nógu spennandi stöff er ráð að smella sér í dýpsta gljúfur þjóðgarðsins, bókstaflega kallað Miklagljúfur. Nánar tiltekið á brú þá er þar er að finna 300 metrum yfir dalbotninum. Fimm stjörnu útsýni en það þarf smá kjark til. Brúargólfið er nefninlega úr gleri 😉
PS: Zhangjiajie-þjóðgarðurinn finnst í Hunan-héraði Kína í 40 kílómetra fjarlægð frá borg sem ber sama nafn. Ekki klikka á að bóka túr um þjóðgarðinn FYRIRFRAM því engir miðar eru seldir á staðnum. Við myndum bjóða upp á heimsíðuna hér en sú aðeins á kínversku og því gagnslaus fölbleikum landanum. Forvitnastu í landinu sjálfu.




